Örfyrirlestrar um tilfinningar í norrænum fornsögum

Oddi
Stofa 101
Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild HÍ, Gareth Lloyd Evans, dósent við Oxford háskóla, Carolyne Larrington, prófessor emerita við Oxford háskóla og fleiri flytja örfyrirlestra um tilfinningar í norrænum fornsögum í stofu 101 í Odda, fimmtudaginn 12. júní kl. 16:00-17:30. Viðburðurinn er haldinn á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands.
Fyrirlesarar eru höfundar greina í nýútkominni bók sem nefnist Saga emotions og var gefin út hjá Manchester University Press. Í bókinni fjalla helstu fræðimenn á sviði tilfinninga í miðaldabókmenntum um hvernig þær birtast í forníslenskum sögum og rannsaka þær fjölbreyttu leiðir sem farnar eru til að tjá þær. Hver kafli hefur að útgangspunkti forníslensk orð sem bera með sér skýra tilfinningalega merkingu:
angr, hryggr – Edel Maria Porter
ást – Siân Grønlie
elska, unna – Sif Rikhardsdottir
aumka, líkn, sampíning – Ásdís Egilsdóttir
berserksgangr and víghugr – Gareth Lloyd Evans
girnd – Alexander Wilson
gleði – Carolyne Larrington
harmr, hörmung, sorg, tregi – Kristen Mills
leiðask, leiðendi, viðbjóðr – Rebecca Merkelbach
ofsi – Kate Olley
ótti – Teodoro Manrique Antón
reiði – George Manning
skömm, skammask – Brynja Þorgeirsdóttir
Fyrirlesarar eru höfundar greina í nýútkominni bók sem nefnist Saga emotions.
