Skip to main content

Opnun sýningarinnar Glöggt er gests augað

Opnun sýningarinnar Glöggt er gests augað - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2025 16:00 til 18:00
Hvar 

Sjóminjasafninu í Reykjavík

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sýningin Glöggt er gests augað opnar föstudaginn 30. maí kl. 16:00 í Sjóminjasafninu í Reykjavík. Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, opnar sýninguna. Léttar veitingar í boði.

Sýningin er tileinkuð sögufrægum Íslandsleiðöngrum franska sjóherlæknisins og náttúruvísindamannsins Paul Gaimard árin 1835 og 1836.

Að sýningunni standa nemendur í námskeiði á vegum Hagnýtrar menningarmiðlunar við Háskóla Íslands, í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Sérstakur ráðgjafi sýningarinnar er Sumarliði Ísleifsson, doktor í sagnfræði og höfundur bókarinnar Í Fjarska norðursins. Sýningin hlaut styrk úr safnasjóði.

Sýningin Glöggt er gests augað opnar föstudaginn 30. maí kl. 16:00 í Sjóminjasafninu í Reykjavík.

Opnun sýningarinnar Glöggt er gests augað