Skip to main content

Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum

Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. mars 2026 9:15 til 12:30
Hvar 

Háskólinn á Akureyri

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum: Samstarf háskóla og annarra stofnana

Á málþinginu koma saman fræðimenn og fagfólk til að kynna nýjustu sjálfsvígsrannsóknir ásamt fulltrúum þjónustu- og samfélagsúrræða sem sinna sjálfsvígsforvörnum á Íslandi.

Málþingið markar mikilvægan áfanga þar sem kynnt verða samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Embættis landlæknis og Landspítala um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs og munu samstarfsaðilar formlega skrifa undir viljayfirlýsingu vegna samstarfsins á málþinginu.

Hér má nálgast drög að dagskrá og skráningu.

Málþingið fer fram í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig streymt frá því.

Hlekkur á streymi.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Léttur hádegisverður að málþingi loknu.

Mikilvægt er að þátttakendur sem mæta á staðinn skrái sig til þátttöku.

Öll hjartanlega velkomin!