Skip to main content

Málþing til heiðurs Sven Þ. Sigurðssyni

Málþing til heiðurs Sven Þ. Sigurðssyni  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. júní 2025 13:00 til 16:00
Hvar 

Edda

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþing til heiðurs Sven Þ. Sigurðssyni prófessor emerítus áttræðum verður haldið í Eddu þriðjudaginn 10. júní kl. 13–16.

Sven var farsæll kennari við háskólann og stundaði rannsóknir á fjölbreyttum sviðum sem mörg tengdust reiknifræði. Nokkrir samstarfsmenn og fyrrum nemendur flytja erindi á málþinginu um þessar rannsóknir og framhald þeirra.

Dagskrá:

Kristján Jónasson: Fyrsti reiknifræðingurinn

Jón Friðrik Daðason: Mállíkön fyrir tungumál með takmörkuð málföng

Warsha Singh: Í leit að loðnu

Steinn Guðmundsson: Sjálfvirk flokkun á heilaritum

Anna Soffía Hauksdóttir: Á lokuðu formi?

Að erindum loknum verður boðið upp á veitingar.

Vinsamlegast skráið þátttöku  

 

Sven Þ. Sigurðsson, prófessor emerítus

Málþing til heiðurs Sven Þ. Sigurðssyni