Skip to main content

Kennsludagar: Hugvísindasvið

Kennsludagar: Hugvísindasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. mars 2026 15:15 til 17:15
Hvar 

Árnagarður

Stofa 310

Nánar 
Á íslensku

Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.

Viðburður á vegum Hugvísindasviðs: Kennsluþróun í hugvísindum: Að fagna fjölbreytileikanum. Árnagarður 310, kl. 15:15-17:15. Staðviðburður. Öll velkomin.

Hugvísindaþing hefst þennan dag og markar það upphaf Kennsludaga er meðlimir akademíunnar ásamt öðrum fræðimönnum bjóða til málstofu um kennslu og kennsluþróun. Í málstofunni verður fjallað um fjögur kennsluþróunarverkefni innan hugvísinda. Greint verður frá rannsókn á kennsluháttum og hæfni háskólakennara í íslensku sem öðru máli og frá niðurstöðum könnunar á notkun kynhlutlausra fornafna til að skapa öruggt námsumhverfi fyrir kynsegin fólk. Þá verður sagt frá reynslu af kennslu Aurora-námskeiðs og niðurstöðum rýnihópaviðtala við nemendur námskeiða þar sem gerð var tilraun með kennslu á tveimur tungumálum samtímis.