Kennsludagar: Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyr:N102
Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.
Viðburður á vegum Háskólans á Akureyri: Efling nemendamiðaðrar háskólakennslu-vinnustofa. Háskólinn á Akureyri, stofa N102, kl.13:30-15:00. Staðviðburður. Öll velkomin.
Meðlimir kennsluakademíunnar í Háskólanum á Akureyri þau Jette Jörgensen, Hafdís Skúladóttir, Sean Michael Scully og Guðmundur Ævar Oddsson bjóða upp á áhugaverða vinnustofu um nemendamiðaða nálgun. Í háskólastarfi er sífellt lögð meiri áhersla á nemendamiðaða nálgun sem lykilþátt í árangursríkri kennslu og þýðingarmiklu námi. Þrátt fyrir það veita hefðbundnar kennslukannanir, sem skila oft lítilli svörun og veita takmarkaða endurgjöf, aðeins þröngt sjónarhorn á upplifun nemenda. Þessi vinnustofa byggir á þremur örkynningum frá kennurum í hjúkrunarfræði og auðlindafræði sem hafa hver um sig kannað leiðir til að hlusta á og samþætta raddir nemenda áður en námskeið hefjast, meðan á þeim stendur og eftir að þeim lýkur.
Þeir sem hyggjast mæta eru beðnir að skrá sig í Uglu HA en þar má finna frekari upplýsingar.