Kennsludagar: Frá námi til starfs

Setberg
Suðurberg 305
Kennsludagar: Viðburður á vegum Verfræði-og nátttúruvísindasviðs: Frá námi til starfs: hvernig tól atvinnulífsins efla verkefnadrifna verkfræðikennslu. Setberg, Suðurberg 305, kl.10:00-11:00. Viðburðurinn er hybrid í Setbergi. Þeir sem ætla að mæta á stað eru beðnir um að skrá sig en einnig er hægt að fylgjast með á Teams. Hér er hlekkur.
Helga Ingimundardóttir, lektor á Verkfræði-og náttúruvísindasviði fjallar um hvernig má nýta verkfæri og vinnulag úr atvinnulífinu, sérstaklega þau sem tengjast agile hugsun og samvinnudrifnum ferlum, til að styrkja verkefnadrifin námskeið þar sem unnið er með forritun og tæknilegar skýrslur.
Sýnt er hvernig hægt er að flétta saman vinnulag og verkfæri sem eru algeng í atvinnulífinu þannig að þau verði eðlilegur og gagnlegur hluti af námsumhverfinu.
Með því að nota tól eins og kóðageymslur, pull requests, sameiginleg vinnusvæði og skýr verkferli fá nemendur tækifæri til að vinna á svipaðan hátt og bíður þeirra í raunverulegum verkefnum eftir útskrift.
Einnig er fjallað um hvernig þessi nálgun bætir yfirsýn, eykur fagmennsku og auðveldar bæði nemendum og kennurum að fylgjast með framvindu, skipuleggja vinnu og skila gæðaniðurstöðum. Markmiðið er að tengja námið nær þeim veruleika sem bíður nemenda í starfi og nýta það sem hagnýtan hvata til betra náms.