Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi

Veröld - Hús Vigdísar
Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, heimsækir forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, 15. apríl 2026 í tengslum við Velsældarþingið í Reykjavík.
Af því tilefni taka forsetarnir þátt í opnu samtali í Veröld, húsi Vigdísar, undir yfirskriftinni „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi“.
🕓 Tími: 16:00–17:00
📍Staðsetning: Veröld, hús Vigdísar, Háskóla Íslands
Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu, en skráning er nauðsynleg fyrir þátttöku á staðnum þar sem pláss er takmarkað.
Ef aðalsalur fyllist verður gestum vísað í tvo hliðarsali þar sem viðburðinum verður varpað í beinu streymi.
Einnig verður streymi á netinu í boði fyrir þau sem vilja fylgjast með heiman frá sér og ekki þarf að skrá sig til að horfa á netinu.
Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, heimsækir forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, 15. apríl 2026 í tengslum við Velsældarþingið í Reykjavík. Af því tilefni taka forsetarnir þátt í opnu samtali í Veröld, húsi Vigdísar, undir yfirskriftinni „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi“.
