Skip to main content

Heimilisleysi meðal þeirra sem hafa verið vistuð utan heimilis

Heimilisleysi meðal þeirra sem hafa verið vistuð utan heimilis - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. júní 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Borgartúni 27, 2. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alþjóðlegar rannsóknir benda ítrekað á að ungt fólk sem hefur verið vistað utan heimilis sem börn eru í aukinni hættu á að upplifa heimilisleysi en lítið er vitað um þessa skörun, þ.e. reynslu þeirra, hverjar áskoranirnar eru og hvaða stuðnings sé þörf.

Á málstofunni verður kynnt yfirstandandi norræn rannsókn á reynslu og upplifun af heimilisleysi meðal ungs fólks sem hafa verið í fóstri eða vistun en gagnasöfnun á sér stað nú um þessar mundir á Íslandi sem og á hinum norðurlöndunum. Á Íslandi er rannsóknin unnin af Freydísi Freysteinsdóttur prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og Evu Dögg Sigurardóttur lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í greiningu tölulegra gagna hjá Barna- og fjölskyldustofu.

Í þessari rannsókn er gengið út frá því grunnstefi að heimilisleysi er ekki einstaka atvik heldur ferli sem markað er af atburðum og lífsreynslu einstaklingsins. Tekin verða viðtöl við 8 til 10 ungmenni í hverju landi fyrir sig, eða 40-50 einstaklingar í heildina. Notast verður við lífssögu aðferð (life-history research) þar sem lífsreynsla og atburðir eru notaðar sem vörður til að leiða samtal og þannig ná dýpri skilningi á upplifun ungmennanna og ljá þeim rödd á eigin forsendum. Viðtölin munu því gefa góða innsýn inn í stöðu mála í hverju norðurlandi fyrir sig en einnig samanburð þvert á löndin fimm, hvað er líkt og hvað er ólíkt.

Rannsóknin samanstendur af fjórum fösum, en auk viðtalanna hefur þegar verið unnin kerfisbundin yfirferð á rannsóknum frá 2000-2023 og yfirferð og samanburður á stefnum norðurlandanna í málum ungmenna sem hafa verið vistuð utan heimilis og hvaða stuðningur er í boði til að koma í veg fyrir heimilisleysi. Hér verða kynntar tvær fræðigreinar unnar upp úr fyrsta fasa rannsóknarinnar og farið yfir næstu skref.

Fyrirlesari er Eva Dögg Sigurðardóttir lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í greiningu tölulegra gagna hjá Barna- og fjölskyldustofu.

Viðburðurinn er haldinn í samvinnu Félagsráðgjafardeildar HÍ og Félagsráðgjafafélags Íslands.

Símanúmer tengiliðs: 868-5916

Viðburðurinn verður í streymi:

https://eur02.safelinks.protection.outlook.com/ap/t-59584e83/?url=https%3A%2F%2Fteams.microsoft.com%2Fl%2Fmeetup-join%2F19%253ameeting_N2MwM2IxOWMtM2U0ZS00ODcwLTk5ZmUtM2Q1OWYxY2ZkMzE3%2540thread.v2%2F0%3Fcontext%3D%257b%2522Tid%2522%253a%2522af1ab75f-1b3e-438b-a264-d10bf6b02c22%2522%252c%2522Oid%2522%253a%25229d29c493-14a8-42c5-981f-5ee7ea643b0b%2522%257d&data=05%7C02%7Ceds%40hi.is%7C5c3f3fcddeae495b587408dd91fe3efc%7C09fa5f0e211846568529677ed8fdbe78%7C0%7C0%7C638827243344409613%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJFbXB0eU1hcGkiOnRydWUsIlYiOiIwLjAuMDAwMCIsIlAiOiJXaW4zMiIsIkFOIjoiTWFpbCIsIldUIjoyfQ%3D%3D%7C0%7C%7C%7C&sdata=bXUkAqPq6UvcvNLE1wfKk3Kd0UMp0r9WsNO1zR5qRqM%3D&reserved=0