Skip to main content

Heilsan okkar: Fíknivandi ungmenna

Heilsan okkar:Fíknivandi ungmenna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. febrúar 2026 11:30 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar – Fíknivandi ungmenna

Annar fundur í fundaröðinni Heilsan okkar árið 2026 fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 27. febrúar kl. 11:30 til 13:00

Markmiðið með fundinum er að reyna að veita heildstæða mynd af stöðu barna og ungmenna á Íslandi í dag tengt fíknivanda. Fjallað verður um þær áskoranir sem við er að etja og hvernig mismunandi aðilar vinna að því að bregðast við stöðunni og bæta hana.

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Samstarfsaðili: Farsældarnet barna
Fundarstjóri: Sigrún Daníelsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis

Hlekkur á beint streymi: https://vimeo.com/event/5738412

Dagskrá

  • Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið HÍ – Vanlíðan ungmenna og notkun vímuefna

  • Dr. Eva Dögg Sigurðardóttir sérfræðingur í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna hjá Barna- og fjölskyldustofu og lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands – Breytingar á tilkynningum til Barnaverndar síðustu árin vegna áhættuhegðunar

  • Guðmundur Fylkisson, Aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu – Staðan í málaflokki ,,týndra barna“ og helstu breytingar síðustu ára

  • Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ – Fíknvandi ungmenna, meðferðarúrræði og áskoranir 

  • Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar – „Börnin okkar“ forvarnarverkefni Mosfellsbæjar

  • Pallborðsumræður – Funi Sigurðsson framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu tekur þátt í umræðum

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Annar fundur í fundaröðinni Heilsan okkar árið 2026 fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 27. febrúar kl. 11:30 til 13:00 // Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Heilsan okkar:Fíknivandi ungmenna