Skip to main content

Háskóladagurinn 2026

Háskóladagurinn 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. febrúar 2026 12:00 til 15:00
Hvar 

Háskólatorg, Askja og Saga

Nánar 
Öll velkomin

Háskóli Íslands býður landsmönnum öllum í heimsókn á Háskóladaginn laugardaginn 28. febrúar 2026 milli klukkan 12 og 15.

Öll áhugasöm geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð Háskóla Íslands en á fjórða hundrað námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi eru í boði við skólann. Einnig fer fram kynning á margþættri og öflugri starfsemi og þjónustu Háskólans. 

Á staðnum verða vísindamenn, kennarar og nemendur úr öllum deildum Háskólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst.

Ekki missa af því þegar Háskólinn opnar dyr sínar upp á gátt – komið og kynnið ykkur spennandi nám sem opnar leiðina út í atvinnulífið.

Allar námsleiðir verða kynntar á háskólasvæðinu og hér má sjá í hvaða byggingum námsleiðirnar verða kynntar.

Námskynningar á vegum einstakra fræðasviða Háskóla Íslands verða á eftirtöldum stöðum:

Á 2. hæð á Háskólatorgi verða fulltrúar frá Nemendaráðgjöf, Alþjóðasviði og Nemendaskrá. Á staðnum verða einnig fulltrúar frá stúdentaráði og fulltrúar Félagsstofnunar stúdenta sem veita upplýsingar um Stúdentagarða, Leikskóla stúdenta og aðra þjónustu.

Þá verður Háskólinn á Hólum einnig með námskynningu á Háskólatorgi.

Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskólinn og Listaháskóli Íslands kynna jafnframt námsframboð sitt í Sögu.

Háskólinn í Reykjavík verður einnig með námskynningu í eigin húsakynnum við Öskjuhlíð og Listaháskóli Íslands kynnir allar sínar námsleiðir í eigin húsakynnum í Stakkahlíð.

Ókeypis er að nota Hopp hjól þegar ferðast er milli skólanna.

Háskóladagurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.

Frekari upplýsingar um Háskóladaginn má finna á vef Háskóladagsins

Á Háskóladaginn býður Háskóli Íslands landsmönnum öllum í heimsókn. Komdu til okkar laugardaginn 28. febrúar milli klukkan 12 og 15.