Skip to main content

Gervigreind - Tölum um arkítektúr og hönnun

Gervigreind - Tölum um arkítektúr og hönnun - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. september 2025 8:30 til 10:00
Hvar 

Gróska

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fundum í vetur í Grósku um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Ókeypis inn og öll velkomin.

Skráðu þig hér: https://forms.gle/TkbrdeNvM1xdJg4p6

Fyrsti opni fundur vetrarins fjallar um gervigreind og hvernig hönnuðir og arkitektar nýta sér tæknina. Hvað er gott og hvað er slæmt? Hvar liggja tækifæri til framtíðar og hvað ber að varast? Fjórir hönnuðir og arkitektar flytja snörp erindi um hvernig þau nota gervigreindartæknina og taka þátt í umræðum ásamt sérfræðingi.

Þátttakendur:
Daniel Zarem, vöruhönnuður Össur
Kristján Örn Kjartansson, arkitekt KRADS
María Guðjohnsen, þrívíddarhönnuður
Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður Aton
Safa Jemai, framkvæmdastjóri Víkonnekt

Umræðustjóri: Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP
Húsið opnar kl. 8:30 en fundurinn hefst á slaginu 9! See less

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fundum í vetur um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Ókeypis inn og öll velkomin.

Gervigreind - Tölum um arkítektúr og hönnun