Skip to main content

Framtíðarsýn um læsi: fræði, stefnumótun og vettvangur

Framtíðarsýn um læsi: fræði, stefnumótun og vettvangur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. mars 2026 11:30 til 13:00
Hvar 

Saga

Stofa S-316

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvenær: Mánudaginn 16. mars kl. 11:30 – 13:00
Hvar: Saga - Menntavísindasvið Háskóla Íslands, stofa S-316 og á ZOOM. https://eu01web.zoom.us/j/69920695583

Takið með ykkur nesti – heitt verður á könnunni.

Félag um menntarannsóknir og námsleiðin Menntun, forysta og fræðslustarf á Menntavísindasviði Háskóli Íslands halda opinn nestisfund þar sem rætt verður um framtíðarsýn um læsi í íslenskum grunnskólum.
Eftirfarandi aðilar verða með stuttar framsögur:

  • Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus
  • Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar
  • Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla

Á undanförnum misserum hefur umræða um læsi og lestrarkennslu í grunnskólum verið áberandi í opinberri umræðu, ekki síst í tengslum við alþjóðlegar kannanir og samanburð við önnur lönd. Í þeirri umræðu hefur gjarnan verið leitað eftir einföldum skýringum og skyndilausnum, þar sem áhersla er lögð á tilteknar aðferðir fremur en heildstæða sýn á læsi og menntun.

Á fundinum verður fjallað um á hvaða forsendum framtíðarsýn um læsi í íslenskum grunnskólum ætti að byggja. Sérstök áhersla verður lögð á lestrarnám sem hluta af víðara hugtaki um læsi, faglegt sjálfstæði kennara, jafnræði til náms og mikilvægi lestraránægju og menningarlegs samhengis.

Fundurinn er ætlaður kennurum, skólastjórnendum, kennaranemum, fræðimönnum, sveitarstjórnarfólki og öðrum sem hafa áhuga á menntamálum og þróun læsis í íslensku skólakerfi.

Nestisfundurinn er vettvangur fyrir fræðilega upplýsta umræðu og ígrundun um framtíð lestrarnáms, þar sem horft er til langtímasjónarmiða fremur en skammtímalausna.
Félag um menntarannsóknir og námsleiðin Menntun, forysta og fræðslustarf á Menntavísindasviði