Skip to main content

Fögnum góðum árangri

Fögnum góðum árangri  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. febrúar 2026 16:00 til 17:00
Hvar 

Saga

5.hæð - kaffistofa

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Komum saman til að fagna og heiðra þau úr hópi starfsfólks og doktorsnema Menntavísindasviðs sem hafa fengið rannsóknarstyrki nýverið. Við viljum vekja athygli á þessum góða árangri okkar fólks sem einnig styrkir orðspor Menntavísindasviðs og eykur sýnileika rannsókna á sviðinu. Sjáumst á kaffistofunni á 5. hæð á fimmtudag 26. febrúar kl. 16. Kaffi og kaka í boði!

Fimm rannsóknarverkefni frá Menntavísindasviði fengu styrk frá Menntarannsóknasjóði, fjögur frá Rannís og þrjú rannsóknarverkefni hlutu Erasmus styrki nýverið:

Menntarannsóknasjóður:

  • Guðrún Ragnarsdóttir: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
  • Hannes Ottósson: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.
  • Sara Margrét Ólafsdóttir: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).
  • Eva Harðardóttir: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.
  • Valgerður S. Bjarnadóttir: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.

Verkefnisstyrkur, Rannsóknasjóður Rannís:

  • Rúna Sif Stefánsdóttir, Ársæll Már Arnarsson, Vaka Rögnvaldsdóttir: Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna

Doktorsnemastyrkir Rannís:

  • Brittany Marie Repella: Næra og Fræða – Fæðufærni, næringarfræðsla og fæðuóöryggi
  • Lóa Guðrún Gísladóttir: Að byggja betri framtíð með því að efla velferð barna og foreldra: Mat og gildi foreldranámskeiðsins Tengjumst í leik á Íslandi
  • Unnur Edda Garðarsdóttir: "Ég vil bara að einhver elski mig" Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís

Erasmus+ verkefni í gegnum landsskrifstofu

  • Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir: Teachers' education - advocating for children's rights
  • Ólafur Páll Jónsson: Supporting Open Learning and Understanding Teens In Opportunities for Neighbourhoods and Nature 

Erasmus+ verkefni í gegnum Brussel

  • Ólafur Páll Jónsson:  LIFE; Launching Inspirational pathways for transFormative Education