Er flokkaflakk nýja normið? Útgáfufundur Stjórnmála & stjórnsýslu

Oddi
Stofa 101
Útgáfufundur 1. tbl. 21. árg. ritrýnda tímaritsins Stjórnmála & stjórnsýslu.
Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild HÍ, kynnir grein hans og félaga hans í Íslensku kosningarannsókninni – þeirra Agnars Freys Helgasonar, Evu H. Önnudóttur, Huldu Þórisdóttur, Jóns Gunnars Ólafssonar og Ólafs Þ. Harðarsonar.
Um helmingur kjósenda kaus annan flokk árið 2024 en þau höfðu gert í kosningunum 2021. Í rannsókninni er kafað ofan í orsakir þessa mikla flokkaflakks og fjallað um hvort það sé e.t.v. nýja normið í íslenskum stjórnmálum.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.
Öll velkomin.