Drífa Viðar þar og þá - Sófaspjall í Loftskeytastöðinni

Loftskeytastöðin
Loftskeytastöðin mun fimmtudaginn 26. febrúar kl. 16.30 efna til sófaspjalls um nýútkomna bók um Drífu Viðar (1920-1971). Drífa var myndlistarmaður, rithöfundur og gagnrýnandi og tók auk þess virkan þátt í stjórnmálaumræðum síns tíma.
Þátttakendur eru Aðalsteinn Ingólfsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Jón Karl Helgason og Kristín Guðrún Jónsdóttir en einnig verður kallað eftir umræðum úr sal. Markmiðið er að varpa ljósi á ævi og störf þessarar stórmerku konu, tengsl hennar við listafólk í Unuhúsi og New York. Síðast en ekki síst verður rætt um þríeykið Drífu, Nínu Tryggvadóttur og og Louisu Matthíasdóttur. Spjallið er öllum opið á meðan að húsrúm leyfir, léttar veitingar í boði.
Inngangur er að vestanverðun við hlið lyftunnar, við bílastæði HÍ.
Umrædd bók, sem kom út á liðnu hausti, gerir ævistarf Drífu aðgengilegt bæði almenningi og fræðimönnum. Auk þess að innihalda greinar sem gefa innsýn í fjölbreytt ævistarf hennar má í henni finna um hundrað listaverk sem mörg hafa aldrei komið fyrir augu almennings áður. Þar eru líka brot úr bréfum Drífu sem lýsa bæði tíðaranda og afstöðu hennar til listarinnar.
Inngang bókarinnar skrifuðu Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku, og Jón Thoroddsen heimspekikennari, eiginmaður Kristínar og sonur Drífu. Aðalheiður Valgeirsdóttir, listfræðingur, skrifar grein um myndlist Drífu og einnig er endurbirt í bókinni grein Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings þar sem myndverk Drífu eru til umfjöllunar. Helga Kress, prófessor emerita í bókmenntafræði, skrifar vandaða greiningu á skáldverkum Drífu og Auður Aðalsteinsdóttir, doktor í bókmenntafræði, skrifar um list- og bókmenntagagnrýni hennar. Þá birtist þar kafli eftir Einar Stein Valgarðsson um þátttöku Drífu í stjórnmálum. Elísabet Gunnarsdóttir, safnstjóri Listasafns ASÍ og ekkja Guðmundar Thoroddsen, sonar Drífu, skrifaði einnig kafla í bókinni um myndlist Drífu Viðar.
Ritstjórar eru Kristín Guðrún Jónsdóttir, Auður Aðalsteinsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir.
Loftskeytastöðin mun fimmtudaginn 26. febrúar kl. 16.30 efna til sófaspjalls um nýútkomna bók um Drífu Viðar (1920-1971). Drífa var myndlistarmaður, rithöfundur og gagnrýnandi og tók auk þess virkan þátt í stjórnmálaumræðum síns tíma.
