Dr. Guðmundur Magnússon og Dr. Þráinn Eggertsson hljóta heiðursdoktorsnafnbót

Aðalbygging
Hátíðarsalur
Dr. Guðmundur Magnússon og Dr. Þráinn Eggertsson, báðir prófessor emeritus, hljóta heiðursdoktorsnafnbót Hagfræðideildar Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi framlag til hagfræða, rannsókna og samfélagsumræðu.
Guðmundur lauk doktorsprófi í hagfræði frá Uppsala háskóla. Hann hafði mótandi áhrif á þróun hagfræðinnar, bæði sem kennari við Háskóla Íslands og einnig sem ötull talsmaður fræðanna í samfélagi okkar.
Guðmundur var rektor Háskóla Íslands 1979-1985 og vann hann markvisst að því að styrkja innviði skólans og efla faglegt skipulag og beitti sér fyrir auknu samstarfi háskólans og atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun. Guðmundur hefur jafnframt gegnt fjöldamörgun trúnaðarstörfum í íslensku samfélagi.
Hann tók þátt í stofnun Hagfræðistofnunar og var fyrsti forstöðumaður hennar. Guðmundur birti mikinn fjölda greina í dagblöðum, tímaritum og bókum þar sem hann hélt fram sjónarmiðum byggðum á hagfræðilegri greiningu.
Þráinn Eggertsson lauk doktorsgráðu frá Ohio State University. Hann átti lykilþátt í því að móta hagfræði sem sjálfstæða fræðigrein við Háskóla Íslands í byrjun áttunda áratugarins.
Fræðilegt starf Þráins hefur alla tíð tengt alþjóðlega fræðimennsku við íslenskan veruleika. Hann stundaði rannsóknir um árabil við erlenda háskóla og er meðal þeirra fræðimanna sem mótuðu hina svokölluðu „nýju stofnanahagfræði“. Bók hans Economic Behavior and Institutions hefur haft varanleg áhrif innan hagfræði. Þá hefur Þráinn birta fjölda greina í tímaritum og bókum.
Dr. Guðmundur Magnússon og Dr. Þráinn Eggertsson, báðir prófessor emeritus, hljóta heiðursdoktorsnafnbót Hagfræðideildar Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi framlag til hagfræða, rannsókna og samfélagsumræðu.
