Skip to main content

Brautskráning Heklu Bjarkar úr leiðtogafærni, framhaldsnámi í starfstengdu diplómanámi

Brautskráning Heklu Bjarkar úr leiðtogafærni, framhaldsnámi í starfstengdu diplómanámi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. mars 2026 14:00 til 15:00
Hvar 

Saga

2. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands býður til hátíðlegrar athafnar þann 13. mars kl. 14-15 á 2. hæð í Sögu þar sem Hekla Björk Hólmarsdóttir brautskráist úr tveggja ára framhaldsnámi í leiðtogafærni í starfstengdu diplómanámi við Deild heilsueflingar, tómstunda og íþrótta á Menntavísindasviði.

Hekla er fyrsti nemandinn til að ljúka framhaldsnámi á þessari námsleið. Um er að ræða mikilvæg tímamót í þróun inngildandi háskólanáms á Íslandi.

Hekla starfar í dag sem aðjúnkt við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði.

Dagskrá

  • Ávarp - Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ
  • Ólík sjónarmið - Háskóli fyrir öll - Hekla Björk Hólmarsdóttir ásamt Andreu Þóreyju Sigurðardóttir og Hrafnhildi Ásu Sigurðardóttur meistaranemum í þroskaþjálfafræði
  • Draumar geta ræst - Hekla Björk Hólmarsdóttir
  • Brautskráning Heklu  