Ástir, hugmyndir og átök: Hópur kínverskra menntamanna í upphafi 20. aldar

Hvenær
19. mars 2026 17:30 til 18:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Nánar
Aðgangur ókeypis
Yabei Hu, kínverskukennari og myndasöguteiknari, fjallar um líf, hugmyndir og flókin tengsl innan heillandi hóps kínverskra hugsuða snemma á 20. öld. Fyrirlesturinn gefur lifandi innsýn í þennan áhugaverða hóp og hentar öllum, óháð fyrri þekkingu á kínverskri sögu eða bókmenntum.
Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku, fimmtudaginn 19. mars 2026, kl.17:30, í stofu 007 í Veröld – húsi Vigdísar og er öllum opinn.
Yabei Hu, kínverskukennari og myndasöguteiknari.
