Skip to main content

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. apríl 2026 9:30 til 18:30
Hvar 

Norræna Húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.

Öll velkomin, vinsamlegast skráið þátttöku hér:
https://forms.cloud.microsoft/e/61ZuXfKxad

Dagskrá:

09:30 – 09:40 | Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins

Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

09:40 – 10:20 | Öryggismál á tímamótum: Evrópa, NATO og nýjar línur í heimspólitíkinni

Boris Ruge, aðstoðarframkvæmdastjóri pólitískra málefna hjá Atlantshafsbandalaginu

Hermann Örn Ingólfsson, varaskrifstofustjóri á skrifstofu alþjóðapólitískra málefna hjá utanríkisráðuneytinu

Umræðustjóri: Elín Margrét Böðvarsdóttir, sérfræðingur á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins

10:20 – 11:10 | Ísland á umbrotatímum: Valdapólitík, vantraust og átök í alþjóðakerfinu

Dagur B. Eggerstsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum borgarstjóri, Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði og rússlandsfræðum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Sesselja Sigurðardóttir, skrifstofustjóri laga- og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður sjálfstæðisflokksins og sérstakur erindreki um málefni úkraínskra barna í umboði framkvæmdastjóra Evrópuráðsins

Málstofustjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

11:10 – 11:25 | Kaffihlé

11:25 – 12:15 | Ísland og Norðurlönd í fókus: Innviðir, viðbúnaður og viðbragðsgeta

Erindi: Linus Owman, verkefnastjóri, samfélagsöryggi og viðnámsþróttur, Norræna ráðherranefndin

Pallborð: Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnastjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Pétur Krogh Ólafsson, forstöðu­maður sjálf­bærni og öryggi innviða hjá Veitum, Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, og Linus Owman verkefnastjóri, samfélagsöryggi og viðnámsþróttur, Norræna ráðherranefndin

Málstofustjóri: Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur hjá innri endurskoðun Landsbankans

12:15 – 12:45 | Léttur hádegisverður

12:45 – 13:15 | Að grafa sig í fönn er ekki valkostur: Ísland og umheimurinn á umrótatímum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra

Umræðustjórn: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

13:15 – 13:30 | Kaffihlé

13:30 – 14:20 | Hvaða tækifæri og áskoranir felast í því að hefja
samningaviðræður um aðild að ESB á ný?

Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, doktorsnemi í stærðfræði, Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti Lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur

Málstofustjóri: Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður hjá RÚV

14:20 – 14:40 | Kaffihlé

14:40 – 15:30 | Þvert á landamæri: Gervigreind, upplýsingaóreiða og alþjóðleg glæpastarfsemi

Erindi: Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni, DIIS

Pallborð: Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, Katrín Sif Oddgeirsdóttir, afbrotafræðingur og sérfræðingur hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður hjá LEX lögmannsstofu og sérfræðingur í tæknirétti, Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS og María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík

Málstofustjóri: Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráðuneytisins

15:30 – 15:50 | Kaffihlé

15:50 – 16:50 | Hvert stefnum við? Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða utanríkisstefnu Íslands

Pallborð: Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Sigríður Á. Andersen, þingmaður miðflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Umræðustjórar:
Bogi Ágústsson, fjölmiðlamaður
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands

16:50 – 17:00 | Lokaorð

Guðni Th. Jóhannesson, stjórnarformaður Alþjóðmálastofnunar, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, forseti Íslands 2016 – 2024

17:00 – 18:30 | Móttaka og uppistand með Birnu Rún Eiríksdóttur

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?