Ágústínus, klassísk heimspeki og bókmenning fornaldar

Aðalbygging
Stofa 229
Ólafur Haukur Árnason, stundakennari í klassískum málum við Háskóla Íslands og doktorsnemi við Oxford-háskóla, kynnir rannsóknir sínar á málstofu Guðfræðistofnunar og veltir upp álitamálum og niðurstöðum doktorsverkefnis síns. Á málstofunni mun Ólafur Haukur leggja áherslu á bókmenningu og kristilega úrvinnslu Ágústínusar á klassískum bókmenntum og heimspeki en doktorsverkefni hans fjallar um verkið Um heimspekina (De philosophia) eftir Marcus Terentius Varro, sem nú er glatað og einungis þekkt af þeim upplýsingum sem Ágústínus veitir. Í því skyni að endurbyggja verkið, að því marki sem það er hægt, hefur Ólafur Haukur rannsakað aðferðir Ágústínusar við ritun og útgáfu verka sinna og greint hvernig hann nýtti sér ritverk annarra við ritun sinna eigin og vann úr klassískri heimspeki í kristilegu samhengi.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ, mánudaginn 23. mars kl. 11:40–13:00. Verið öll velkomin.
Ólafur Haukur Árnason, stundakennari í klassískum málum við Háskóla Íslands og doktorsnemi við Oxford-háskóla.
