Afreksmenning og stjórnun – hvernig ýtum við undir árangur og öfluga menningu?

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og fyrirlesari flytur erindið Afreksmenning og stjórnun – hvernig ýtum við undir árangur og öfluga menningu? fimmtudaginn 5. mars kl. 15-16.30 í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar. Erindið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs - EFST Á BAUGI og unnin í samstarfi við námsbraut íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði.
Fyrirlesturinn verður einnig í streymi.
Afreksmenning verður ekki til af tilviljun. Hún er mótuð með skýrum væntingum, góðri stjórnun og menningu sem styður við árangur. Í þessum viðburði fyrirlestrarraðar Menntavísindasviðs, EFST Á BAUGI 2026, fjallar Þórir Hergeirsson margverðlaunaður handknattleiksþjálfari um mikilvæga þætti afreksstjórnunar og hvernig hægt er að byggja upp umhverfi þar sem fólk nýtur styrkleika sinna, teymi vinna vel saman og markmið verða að sameiginlegri skuldbindingu.
Í erindinu fjallar Þórir meðal annars um jákvæða mannsýn sem grunn að trausti og framþróun, styrkleikamiðaða nálgun sem eykur frumkvæði og frammistöðu, heildræna nálgun á árangur, samskipti og vinnuumhverfi, teymisvinnu og samspil hlutverka og ábyrgðar, gildi og menningu sem leiðarljós í daglegum ákvörðunum og kröfur og skuldbindingar varðandi markmið.
Viðburðurinn hentar íþróttafólki, þjálfurum, íþróttakennurum, forystufólki í íþróttahreyfingunni, stjórnendum, teymisstjórumog öllum sem vilja efla árangur með skýrari stjórnun og sterkari menningu.
Dagskrá:
Opnunarávarp - Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs
Kynning á aðalfyrirlesara - Þórdís Lilja Gísladóttir, deildarforseti heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
Afreksmenning: stjórnun og vinna - Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og fyrrverandi þjálfari norska kvennalandsliðsins
Spurningar og umræður - Örn Ólafsson, námsbrautarformaður íþrótta- og heilsufræði, stýrir
Viðburðurinn verður í beinu streymi. Boðið verður upp á léttar veitingar í lokin.
Verið öll velkomin!
Nánari upplýsingar um Efst á baugi, fyrirlestraröð MVS hér
--
Ágrip:
Þórir Hergeirsson fæddist árið 1964 á Selfossi og hefur verið búsettur á Kleppe á Jæren í Noregi frá árinu 1997. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurlands árið 1985, á íþróttabraut og í húsasmíði, og ári síðar sveinsprófi í húsasmíði. Árið 1986 flutti Þórir til Óslóar og hóf nám við Norges Idrettshøgskole. Þar lauk hann meistaragráðu (master) með sérhæfingu í íþróttasálfræði og þjálfun (coaching), sem mótaði faglega nálgun hans í afreksíþróttum til framtíðar. Þórir hefur starfað sem handknattleiksþjálfari frá árinu 1980, bæði með karla- og kvennalið, hjá félögum á borð við UMF Selfoss, Fredensborg/Ski, Elverum Handball, Gjerpen Handball og Nærbö. Hann hóf störf hjá Norska Handknattleikssambandinu árið 1994 og starfaði þar fram til ársloka 2024, meðal annars sem þjálfari yngri landsliða og síðar A-landsliðs kvenna. Á þeim tíma stýrði hann A-landsliði Noregs í 20 stórmótum á EM, HM og Ólympíuleikum og náði lið hans 17 verðlaunum á árunum 2009 til 2024, þar af 10 gullverðlaunum. Frá árinu 2025 hefur Þórir sinnt fjölbreyttum verkefnum, meðal annars sem þjálfari yngri landsliða og síðar A-landsliðs kvenna. Á þeim tíma stýrði hann A-landsliði Noregs í 20 stórmótum á EM, HM og Ólympíuleikum og náði lið hans 17 verðlaunum á árunum 2009 til 2024, þar af 10 gullverðlaunum. Frá árinu 2025 hefur Þórir sinnt fjölbreyttum verkefnum, meðal annars ráðgjöf og fyrirlestrum, auk hlutastarfa fyrir Handknattleikssamband Íslands og Noregs.
Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og fyrirlesari flytur erindið Afreksmenning og stjórnun – hvernig ýtum við undir árangur og öfluga menningu? fimmtudaginn 5. mars kl. 15-16.30 í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar. Erindið er hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs - EFST Á BAUGI og unnin í samstarfi við námsbraut íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði.
