Afleiðingar stríðsátaka: Fimmta ár innrásarstríðs í Úkraínu og sífellt fleiri styrjaldir

Oddi
101
Eru stríð ekki lengur undantekning heldur reglan? Hvernig er að búa í skugga stríðs og hvað er til ráða? Fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa og átök breiðast stöðugt út. Hvernig þróa samfélög með sér viðnámsþrótt og hvað getum við lært af þeim sem reynsluna hafa?
Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands standa fyrir pallborðsumræðum í Háskóla Íslands um langvarandi stríð í Úkraínu og sífellt fleiri styrjaldir.
Í pallborði verða:
Pia Hanson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ
Karl Garðarsson, fyrrverandi alþingismaður
Valur Gunnarsson, blaðamaður og rithöfundur
Fundarstjóri er Auðunn Arnórsson
Fundurinn fer fram á íslensku og er öllum opinn!
🗓️ Fimmtudagur, 26. mars, 2026
🕦 12:00-13:00
📍 Oddi 101, Háskóli Íslands
Opinn fundur Félags stjórnmálafræðinga, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.
