Áfangamat: Benedikta Björg Sörensen Valtýsdóttir

Áfangamat: Benedikta Björg Sörensen Valtýsdóttir miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 13:00.
Kynbundið ofbeldi og unglingamenning á Íslandi
Verkefnið fjallar um birtingarmyndir og orðræðu um kynbundið ofbeldi á tveimur sviðum sem móta skilning ungs fólks, fræðsluefni og unglinga menningu. Með gagnrýninni orðræðugreiningu er greint bil á milli fræðslu og reynslu ungmenna. Niðurstöðurnar kalla á inngildandi og fjölbreyttari nálgun í fræðslu um kynbundið ofbeldi.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Benedikta rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 á Zoom og er sú kynning opin á nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með hér á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/65906280702
Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Prófdómarar eru dr. Hannah Frith dósent við Háskólann í Surrey, Englandi og dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Aðalleiðbeinandi er dr. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi er dr. Annadís Greta Rúdólfsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Dr. Íris Ellenberger dósent við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Dr. Steingerður Ólafsdóttir er ritari.