Ætlar þú að sækja um að halda alþjóðlega ráðstefnu? Viðtalstími FVS

Hvenær
18. mars 2026 13:00 til 14:00
Hvar
Gimli
301
Nánar
Aðgangur ókeypis
Fulltrúi frá Meet in Reykjavík verða í heimsókn hjá Félagsvísindasviði miðvikudaginn 18. mars og veita góð ráð og svara spurningum sem tengjast því að koma með ráðstefnur til Íslands og þjónustu þar í kring.
Starfsfólk og rannsóknarfólk sem tengist Félagsvísindasviði er velkomið í spjall milli kl. 13:00 og 14:00 í G-301.
Hlutverk Meet in Reykjavík - Iceland Convention Bureau er að styrkja og efla ímynd Íslands og Reykjavíkur sem eftirsóknarverðs áfangastaðar fyrir ráðstefnur, fundi, hvataferðir og alþjóðlega viðburði.