Að finna taktinn - Ráðstefna um hæglátt leikskólastarf

Hvenær
7. maí 2026 13:00 til 17:00
Hvar
Háskólabíó- HB - 2
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hvernig getur hæglæti skapað rými fyrir dýpri tengsl, meiri einbeitingu og aukna vellíðan í leikskólastarfi? Á þessari ráðstefnu er sjónum beint að hæglátri nálgun í leikskólum og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á börn og starfsfólk.
Á dagskrá eru erindi erlendra fræðimanna sem fjalla um hæglæti í uppeldi og menntun, auk frásagna úr leikskólum sem taka þátt í þróunarverkefninu Stilla. Þar verður miðlað af reynslu, áskorunum og lærdómi úr starfi þar sem taktinum er viljandi hægður.
Að ráðstefnu lokinni verða veitingar í Sögu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Skráning og nánari upplýsingar má finna hér