Áfangamat: Svanhildur T. Bryngeirsdóttir

Saga
S-285
Inngrip með myndupptökum til að efla gæði kennslu
Innsýn í kennaranám og starfsþróun kennara með myndupptökum
Markmið rannsóknarinnar er að veita innsýn í með hvaða hætti inngrip með myndupptökum geta stutt við kennaranám og starfsþróun kennara. Kenningarlegur rammi rannsóknarinnar snýr að gæðum kennslu eins og þau eru skilgreind í PLATO ramma um gæði kennslu (e. Protocol for Language Arts Teaching Observation) og að því hvernig markviss eftirtekt hefur áhrif á getu kennara til að byggja kennslu sína á skilningi nemenda.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Svanhildur rannsóknarskýrslu sína kl. 9.00–10.00 í stofu S-285 í Sögu og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Teams: Join the meeting now
Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Prófdómarar eru Dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor emeritus við Háskóla Íslands og Dr. Katrine Nesje dósent við Háskólann í Osló.
Aðalleiðbeinandi er Dr Amalía Björnsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi er Dr Berglind Gísladóttir dósent við Menntavísindasvið.
Dr Guðrún Ragnarsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Gyða Fanney Guðjónsdóttir skrifar skýrslu.