Félagsráðgjöf háskólanema

Háskólatorg
Stofa HT-101
Háskólanám getur verið krefjandi fyrir hvern einstakling, þar sem miklar kröfur, breytingar og nýjar aðstæður geta haft áhrif á líðan og námsárangur. Í slíku samhengi gegnir stuðningsnet mikilvægu hlutverki í að efla seiglu, draga úr streitu og stuðla að betri aðlögun að námi og háskólasamfélagi. Í þessu fræðsluerindi verður fjallað um hvað felst í stuðningsneti háskólanema og hvers vegna félagsleg tengsl skipta máli fyrir andlega líðan og námsframvindu einstaklinga.
Farið verður yfir hvernig skortur á félagslegum tengslum getur leitt til einangrunar og aukins álags. Þá verður lögð áhersla á að nemendur sem búa við ólíkar aðstæður og hafa misjafnt aðgengi að stuðningsneti. Fræðsluerindið er opið öllum nemendum Háskóla Íslands og hentar sérstaklega þeim sem upplifa álag, einangrun eða skort á stuðningi í námi.
Fræðsluerindi um mikilvægi stuðningsnets háskólanema, áhrif félagslegs stuðnings á líðan og nám og hagnýtar leiðir til að efla tengsl og leita sér aðstoðar.
