Afhending Vísinda- og nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands

Aðalbygging
Hátíðasalur
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2026 verða afhent mánudaginn 27. apríl kl. 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.
Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 28. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Árnason Faktor og Auðnu tæknitorgs.
Alls bárust um 20 tillögur í samkeppnina að þessu sinni og veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar verður valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.
Viðburðurinn er öllum opinn.
Boðið verður upp á veitingar að athöfn lokinni.
Viðburðurinn er hluti af nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2026.
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2026 verða afhent mánudaginn 27. apríl kl. 12 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.
