Hlutverk hlustunar í heimspekilegri sam- og rökræðu

Oddi
Stofa 101
Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, flytur opinn fyrirlestur sem nefnist „Hlutverk hlustunar í heimspekilegri sam- og rökræðu.“
Haldið á vegum Heimspekistofnunar HÍ og rannsóknarverkefnisins Frelsi til merkingarsköpunar (Freedom to make sense) í stofa 101 í Odda, miðvikudaginn 15. apríl kl. 15:00-16:30. Verið öll velkomin.
Um erindið
Iðkun heimspekilegrar samræðu er yfirleitt sett fram í ljósi tungumáls og rökræðu, á meðan hlustun hefur lítið verið tengd við fræðilega úrvinnslu—hún er annaðhvort smættuð í kurteisi eða velvildarregluna (e. charity principle). Í þessu erindi ræði ég innri og ytri hlustun sem þekkingarfræðilega og aðferðafræðilega iðkun og kjarna heimspekilegrar sam- og rökræðu.
Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki.
