Skip to main content

„Ófrjálslynt lýðræði“ í framkvæmd: Samband Viktors Orbáns við konur

„Ófrjálslynt lýðræði“ í framkvæmd: Samband Viktors Orbáns við konur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. apríl 2026 16:00 til 17:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Andrea Pető, prófessor við kynjafræðideild Central European University (CEU) í Vín, heldur fyrirlestur um áhrif 16 ára valdasetu Viktors Orbáns á mannréttindi og kynjajafnrétti í Ungverjalandi, þriðjudaginn 21. apríl 2026.Fyrirlesturinn, sem haldinn er á vegum RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Kvenréttindafélags Íslands, hefst kl. 16.00 og fer fram í Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar.

Fyrirlesturinn byggir á nýlegri bók Andreu Pető og Zsuzsönnu Balázs, Viktor Orbán’s Affairs with Women. Þar er stjórnarstefna Viktors Orbáns, sem kennd er við „ófrjálslynt lýðræði“ (e. illiberal democracy) greind og sýnt hvernig hann hefur með markvissum hætti endurskilgreint og grafið undan bæði innlendum og alþjóðlegum viðmiðum um jafnrétti, inngildingu og bann við mismunun til að setja fram valkost við frjálslynd gildi.

Jafnframt er fjallað um ástæður þess að konur hafa kosið ófrjálslyndan stjórnarflokk sem hefur grafið undan réttindum þeirra og efnahagslegri stöðu.

Loks er varpað ljósi á hvernig stjórnvöld hafa beitt „mjúkri ritskoðun“ (e. soft censorship) í Ungverjalandi, m.a. í tengslum við útgáfu bókarinnar.

Að loknum fyrirlestri fara fram pallborðsumræður.

Viðburðurinn er opinn öllum og fer fram á ensku.

Um fyrirlesara

Andrea Pető er prófessor í kynjafræði við Central European University (CEU) í Vín og rannsakandi við CEU Democracy Institute í Búdapest og félagi í Ungversku vísindaakademíunni. Hugtakið kyn gegnir lykilhlutverki í rannsóknum hennar og kennslu, sem og í starfi hennar sem femínískur fræðimaður.

Á undanförnum árum hefur hún greint tengsl ófrjálslyndrar stjórnarhátta og skipulegrar pólitískrar atlögu að háskólum, kynjafræði og fræðafólki á því sviði. Pető hefur jafnframt verið óþreytandi í að undirstrika mikilvægi sögulegrar þekkingar og gagnrýninnar opinberrar umræðu. Það sé forsenda lýðræðislegra samfélaga, þar sem mannréttindi séu í forgrunni.

Pető er eftirsóttur alþjóðlegur fyrirlesari og verk hennar hafa verið þýdd á yfir 25 tungumál. Hún hefur gegnt gestaprófessorsstöðum víða um heim og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir framlag sitt til fræða og samfélagslegrar umræðu, þar á meðal Madame de Staël-verðlaun All European Academies (ALLEA) árið 2018 og mannréttindaverðlaun Háskólans í Osló árið 2022. Hún er jafnframt heiðursdoktor við Södertörn University í Stokkhólmi.

Meðal nýlegra rita hennar eru Viktor Orbán’s Affairs with Women (2025) Forgotten Massacre: Budapest 1944 (2021) og The Women of the Arrow Cross Party: Invisible Hungarian Perpetrators in the Second World War og (2020).

Andrea Pető: „Ófrjálslynt lýðræði“ í framkvæmd: Samband Viktors Orbáns við konur