Skip to main content

Að finna taktinn - Ráðstefna um hæglátt leikskólastarf

Að finna taktinn - Ráðstefna um hæglátt leikskólastarf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. maí 2026 13:00 til 17:00
Hvar 

Háskólabíó- HB - 2

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvernig getur hæglæti skapað rými fyrir dýpri tengsl, meiri einbeitingu og aukna vellíðan í leikskólastarfi? Á þessari ráðstefnu er sjónum beint að hæglátri nálgun í leikskólum og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á börn og starfsfólk. 

Á dagskrá eru erindi erlendra fræðimanna sem fjalla um hæglæti í uppeldi og menntun, auk frásagna úr leikskólum sem taka þátt í þróunarverkefninu Stilla. Þar verður miðlað af reynslu, áskorunum og lærdómi úr starfi þar sem taktinum er viljandi hægður. 

Að ráðstefnu lokinni verða veitingar í Sögu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands 

Skráning og nánari upplýsingar má finna hér