Skip to main content

Slavneskir þrælar í Andalúsíu og Norður-Afríku á miðöldum

Slavneskir þrælar í Andalúsíu og Norður-Afríku á miðöldum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. mars 2026 11:45 til 12:45
Hvar 

Oddi

Stofa 104

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Andriy Danylenko, prófessor í rússneskum og slavneskum málvísindum við Pace-háskóla í New York, heldur opinn fyrirlestur á vegum Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands sem nefnist Slavneskir þrælar í Andalúsíu og Norður-Afríku á miðöldum: Málfræðileg og menningarleg blöndun. Fyrirlesturinn er styrktur af Fulbright.

Haldið í stofu 104 í Odda, þriðjudaginn 24. mars kl. 11:45-12:45. Verið öll velkomin.

Um fyrirlesturinn

Í fyrirlestrinum leggur Dr. Danylenko fram félagsmálfræðilega endurgerð slavneska tungumálsins eins og það var notað af slavneskum (ṣaqlabī) þrælum í al-Andalus (ríki múslima á Íberíuskaga) og Ifrīqīyah (Norður-Afríku) á 9. til 11. öld. Slavneskir þrælar voru fluttir frá Balkanskaga og Austur/Mið-Evrópu og gengu í gegnum menningarlega og málfræðilega aðlögun við staðbundna arabíska menningu og tungumál. Þrátt fyrir talsverða aðlögun héldu ṣaqlabī-þrælar þjóðmálfræðilegri hóp- (ættbálka-) sjálfsmynd og sköpuðu eins konar málblöndu, sem hér kallast slavó-arabíska. Danylenko dregur saman niðurstöður annara fræðimanna og skoðar slavó-arabísku sem leynilegt og endurskipulagt tungumál í vinnslu. Sumar týpólógískar hliðstæður við önnur blönduð tungumál í hinum afró-asískum og arabískumælandi heimi eru ræddar með það að markmiði að varpa nýju ljósi á bæði málfræðilega og menningarlega sögu Slava í íslömsku samhengi Miðjarðarhafs og víðar.

Um fyrirlesarann

Andriy Danylenko er prófessor í rússneskum og slavneskum málvísindum við Pace-háskóla í New York og gegnir einnig stöðu prófessors við Kýiv-Mohyla háskólann í Kýiv. Hann lauk doktorsprófi í sögulegum samanburðarmálvísindum frá RUDN-háskóla í Moskvu. Hann er höfundur og ritstjóri fjölmargra bóka um slavneska málfræði og textafræði, en hefur auk þess birt verk um fjölbreytileg efni –  allt frá indó-evrópskum og semitískum málum til úkraínskra málvísinda. Hann er aðalritstjóri ritraðarinnar Studies in Slavic, Baltic, and Eastern European Languages and Cultures (Bloomsbury). Hann er Fulbright-styrkþegi árið 2026 við Háskólann í Varsjá.

Andriy Danylenko, prófessor í rússneskum og slavneskum málvísindum við Pace-háskóla í New York.

Slavneskir þrælar í Andalúsíu og Norður-Afríku á miðöldum