Alþjóðadagur hamingjunnar 2026

Hvenær
20. mars 2026 13:00 til 15:00
Hvar
Aðalbygging
Hátíðasalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Alþjóðadegi hamingjunnar verður fagnað með málþingi í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 20. mars kl. 13-15. Yfirskrift málþingsins er „Tengsl samfélagsmiðla og hamingju“.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í stafrænum heimi nútímans og hvernig getum við nýtt tæknina á jákvæðan hátt til að styðja við hamingju og vellíðan?
Hamingjutrjáganga Reykjavíkurborgar endar við Háskóla Íslands þar sem málþingið fer fram.
Fundarstjóri:
Embla Bachmann frá Riddurum kærleikans
Dagskrá:
- 13:00 – Opnunarávarp - Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
- 13:15 – Tölur úr vöktun um hamingju Íslendinga -
Sigrún Þóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis - 13:30 – Erindi frá Hauki Brynjarssyni frá Netvís
- 13:45 – Hamingja í samtengdum heimi - rödd ungs fólks á alþjóðavettvangi - Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna & Mia Ðuric, nemandi Menntaskólans í Reykjavík
- 14:05 – Pallborðsumræður
Embla Bachmann stýrir umræðum - 14:30 – Stuð með Eddu Björgvinsdóttur
Málþingið verður einnig í beinu streymi.
Öll hjartanlega velkomin
Alþjóðadegi hamingjunnar verður fagnað með málþingi í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 20. mars kl. 13-15. Yfirskrift málþingsins er „Tengsl samfélagsmiðla og hamingju“.
