Skip to main content

Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi

Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. mars 2026 13:00 til 16:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands standa fyrir málþinginu „Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi“. Haldið á Grand Hotel, fimmtudaginn 26. mars kl. 13:00-16:00.

Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna að undanförnu en lítið um aðgerðir. Á þessum viðburði munu hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni sem og mikilvægum aðgerðum til að bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp.

Á dagskrá eru stutt erindi frá ólíkum samtökum og að þeim loknum pallborðsumræður með spurningum úr sal, þar sem fjallað verður um reynslu, áskoranir og stöðu kvenna.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í gegnum skráningarform hér að neðan og taka fram hvort óskað sé eftir rit- eða táknmálstúlkun. Hvídarhorn verður fyrir utan fundarsal fyrir þau sem þurfa. Hægt er að velja að fylgjast með í gegn um streymi í skráningarformi (smellið hér).

Dagskrá:

Kl. 13.00-16.00 með 45 mín kaffihléi

  • 13.00 - Fundastjóri Marta Jóns Hjördísardóttir talskona sjúklinga á Landspítala opnar
  • 13.05 - Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ réttindasamtaka
  • 13.10 - Fulltrúi heilbrigðishóps ÖBÍ réttindasamtaka
  • 13.20 - Nanna Hlín Halldórsdóttir
  • 13.30 - Samtök um POTS á Íslandi
  • 13.40 - ME félag Íslands
  • 13.50 - Ský – Félag fólks með Post Covid
  • 14.00 - Gigtarfélag Íslands
  • 14.10 Kaffihlé
  • 15.00 - Endósamtökin
  • 15.10 - PCOS samtök Íslands
  • 15.20 - Tabú - femínísk fötluanrhreyfing
  • 15.30 - Pallborð með spurningum úr sal

Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands standa fyrir málþinginu „Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi“. Haldið á Grand Hotel, fimmtudaginn 26. mars kl. 13:00-16:00.

Veik og þreytt dag eftir dag – konur sem lifa við langvinn veikindi