Skip to main content

Nýjar rannsóknir í fornleifafræði: Ragnar Edvardsson

Nýjar rannsóknir í fornleifafræði: Ragnar Edvardsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. mars 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Stofa 005

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 18. mars mun Ragnar Edvardsson halda fyrirlesturinn Minjar á hafsbotni með áherslu á Sundin við Reykjavík í fyrirlestraröðinni Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði sem haldin er á vegum Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands.

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 050 í Aðalbyggingu HÍ og hefst kl. 12:00. Einnig verður hægt að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi hér.

Um fyrirlesturinn 

Minjar neðansjávar eru mikilvægur hluti menningararfsins og gegna lykilhlutverki í að varpa ljósi á samgöngur, verslun, fiskveiðar og búsetu, sem hefur frá upphafi mótast af nálægð við sjóinn. Rannsóknir á minjum neðansjávar eru því ekki aðeins viðbót við hefðbundnar

fornleifarannsóknir á landi, heldur nauðsynleg forsenda þess að hægt sé að byggja upp heildstæða mynd af fortíðinni. Þrátt fyrir þetta hafa tiltölulega fáar fornleifarannsóknir verið stundaðar í sjó og vötnum á Íslandi, jafnvel þótt neðansjávarminjar njóti, rétt eins og minjar á landi, verndar samkvæmt minjalögum. Í samanburði við menningarminjar á landi er raunar lítið vitað um fjölda, varðveislu og eðli minja á hafsbotni. Þær fornleifa- og sagnfræðirannsóknir sem unnar hafa verið benda eindregið til þess að fornleifar á hafsvæðinu við Ísland séu fjölmargar og í mörgum tilfellum ágætlega varðveittar. Í þessum fyrirlestri er fjallað um minjar neðansjávar við Ísland með áherslu á fornleifarannsókn sem framkvæmd var á árunum 2018 – 2020 á Sundunum við Reykjavík, þ.e. svæðið austan Örfiseyjar, milli Engeyjar og Viðeyjar og svo í Eiðsvík. Í verkefninu voru valin svæði á Sundunum við Reykjavík könnuð með fjarkönnun, s.s. sónar, kafbátum og köfunum, til að fá hugmynd um eðli og fjölda minjastaða á Sundunum við Reykjavík. Frá sjónarhóli Reykjavíkur var fornleifarannsóknin á Sundunum mikilvæg viðbót í skilningi á þróun kaupstaðarins frá 18. og fram á 20. öld og varpar m.a. nýju ljósi á byggðaþróun og þróun verslunar á Sundunum.

Miðvikudaginn 18. mars mun Ragmar Edvardsson halda fyrirlesturinn Minjar á hafsbotni með áherslu á Sundin við Reykjavík.

Nýjar rannsóknir í fornleifafræði: Ragnar Edvardsson