Sýningaropnun: Leiðarlag

Opnun sýningarinnar Leiðarlag í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, föstudaginn 20. mars kl. 17:00-19:00. Sýningin er samsýning fyrsta árs meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands og sýningarstjórar eru meistaranemar í sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun við Háskóla Íslands.
Sýningin verður opin 21., 22., 28. og 29. mars kl. 13:00-17:00.
Listasafnið stendur á Laugarnestanga, svæði sem býr yfir ríkri sögu og fjölbreyttum menningarminjum sem hafa mótast í gegnum aldirnar. Titill sýningarinnar vísar í fyrirbærið leiðarlög; afmörkuð, lárétt jarðlög sem liggja samsíða yfirborði jarðar og einkennast hvert um sig af tilteknum eðlis-, efna- og líffræðilegum eiginleikum. Hér endurspeglast ferli líffræðilegra umbreytinga í sögulegum jarðlögum Laugarness, þar sem söguskeiðin hlaðast upp hvert ofan á annað eins og jarðvegur sem byggist upp með tímanum; lag fyrir lag. Verk sýningarinnar marka nýtt stig í þessu lagskipta ferli. Sýningin skapar rými fyrir ýmsa miðla og tjáningarform listamannanna sem allir koma úr ólíkum áttum. Listamennirnir bregðast við forverum sínum og skilja eftir eigin spor í minningum síbreytilegs jarðvegsins.
Boðið verður upp á leiðsögn sýningarstjóra um sýninguna laugardaginn 21.mars kl.14:00 og listamannaspjall sunnudaginn 22.mars kl.14:00 og 29. mars kl 15:30. Sýning á stuttri heimildarmynd verður haldin laugardaginn 28. mars klukkan 16:00. Einnig verður boðið upp á sögugöngu um Laugarnes laugardaginn 28. mars, undir leiðsögn Þuru (Þuríðar Sigurðardóttur), söngkonu og myndlistarkonu. Lagt verður upp frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar klukkan 14:00.
Listemenn:
Áslaug Magnúsdóttir
Celina Aleksandra Borzymowska
Einar Viðar Guðmundsson Thoroddsen
Hildur Ása Henrýsdóttir
Litten Nystrøm’s
Noah Seeland
Pola Sutryk
Regn Evu
Roman
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Þórður Túsan Alisson
Weilan Cha
Sýningarstjórar:
Erla Sverrisdóttir
Dina Abedini Niknam
Sýningin Leiðarlag verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, föstudaginn 20. mars kl. 17:00-19:00.
