Tengjum allt við allt!

Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 108
Eiríkur Smári Sigurðarson, Hugvísindasviði Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur í fyrirlestraröð Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista.
Haldið í stofu 108 í Veröld, þriðjudaginn 17. mars kl. 12:00 til 13.00. Þau sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með fyrirlestrunum í streymi á YouTube-rás MSHL
Í fyrirlestraröð MSHL kynna sérfræðingar úr ýmsum greinum stafrænna hugvísinda og lista rannsóknir sínar í stuttum og aðgengilegum fyrirlestrum. Smellið hér til að kynna ykkur dagskrá fyrirlestraraðarinnar.
Um fyrirlesturinn
Hvernig getum við breytt einangruðum gagnasöfnum í lifandi og samtengdan þekkingarvef? Í þessu erindi er fjallað um tækifæri sem verða til þegar menningarleg gögn eru stafræn og tengd með merkingarfræðilegri tækni. Með því að nýta aðferðafræði tengdra gagna (e. Linked Data) má rjúfa múra á milli ólíkra stofnana og verkefna, þannig að upplýsingar flæði á milli kerfa.
Með innblæstri frá hinu finnska Sampo-módeli, skoðum við hvernig hægt er að smíða stafrænt vistkerfi þar sem handrit, myndlist, örnefni og sögulegar persónur mætast í einu vistkerfi. Markmiðið er að hætta að líta á gögn sem stakar eyjar og byrja að tengja allt við allt. Við ætlum ekki bara að varðveita menninguna, heldur gera hana aðgengilega og gagnvirka.
Eiríkur Smári Sigurðarson.
