Skip to main content

Ágúst Einarsson – heiðursdoktor Viðskiptafræðideildar

Ágúst Einarsson – heiðursdoktor Viðskiptafræðideildar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. mars 2026 14:30 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. rer. pol. Ágúst Einarsson, prófessor emeritus, hlýtur heiðursdoktorsnafnbót Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi framlag sitt til viðskiptafræða, rannsókna og samfélagsumræðu á Íslandi.

Ágúst lauk doktorsprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Hamborg og hefur átt langan og farsælan starfsferil sem prófessor við Háskóla Íslands, síðar rektor og prófessor við Háskólann á Bifröst, auk starfa sem framkvæmdastjóri í sjávarútvegi. Rannsóknir hans og kennsla hafa einkum beinst að rekstrarhagfræði, menningarhagfræði, sjávarútvegsfræðum og skapandi greinum.

Ágúst hefur ritað yfir 30 bækur á íslensku og ensku og lagt sérstaka áherslu á að efla íslenskt fræðamál á sviði viðskiptafræða. Hann er talinn frumkvöðull rannsókna á hagrænum áhrifum menningar og skapandi greina hér á landi og hefur jafnframt gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í íslensku samfélagi, stjórnmálum og atvinnulífi.

Með rannsóknum sínum, ritstörfum og virku framlagi til samfélagsins hefur Ágúst Einarsson haft varanleg áhrif á þróun viðskiptafræða og tengsl háskólasamfélagsins við atvinnulíf og íslenskt samfélag.