Jafnréttismenntun og skólastarf - Kynningarfundur

Saga
Stofa S-346
Blásið er til kynningarfundar þann 12. mars í stofu S-346 í Sögu um nýja námsleið í kennaranámi, jafnréttismenntun og jafnréttisfræði í skólastarfi (MT, 120e) en námið er kennsluréttindanám á meistarastigi á Menntavísindasviði.
Mikilvægi jafnréttisfræða fyrir skólastarf verður til umfjöllunar og hin nýja námsleið verður kynnt, rætt verður um nýjar og yfirstandandi rannsóknir á skólastarfi sem nýta sér sjónarhorn jafnréttisfræða. Viðburðurinn hentar öllum sem áhuga hafa á jafnréttisfræðum og jafnrétti í skólastarfi og kennaranámi.
Verið öll velkomin!