Starf organistans og tónlistarlífið í Hallgrímskirkju

Hvenær
9. mars 2026 11:40 til 13:00
Hvar
Aðalbygging
Stofa 229
Nánar
Aðgangur ókeypis
Björn Steinar Sólbergsson, organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju, flytur erindi á málstofu Guðfræði- og trúarbragðafræðistofnunar Háskóla Íslands. Þar mun hann fjalla vítt og breitt um starf organistans auk þess að gefa í orðum og tónum mynd af hinu blómlega tónlistarlífi í Hallgrímskirkju.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ, mánudaginn 9. mars kl. 11:40–13:00. Verið öll velkomin.
Björn Steinar Sólbergsson, organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju.
