Málþing til heiðurs Brynhildi G. Flóvens.

Hvenær
12. mars 2026 15:30 til 16:30
Hvar
Lögberg
Stofa 101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Þann 12. mars 2024 varð Brynhildur G. Flóvens sjötug og lét af störfum sem dósent við Lagadeild HÍ. Nýverið kom út fræðirit á vegum Bókaútgáfunnar Codex af þessu tilefni. Ritið inniheldur 20 greinar eftir 22 höfunda og endurspeglar áherslur Brynhildar í kennslu og rannsóknum, einkum réttarsvið sem varða félagslegt réttlæti og velferð, hópa í viðkvæmri stöðu og jafnrétti.
Erindi á málþinginu flytja höfundar nokkurra greina í ritinu:
- Gerður Guðmundsdóttir: Skattaréttur frá femínísku sjónarhorni
- Ingigerður Bjarndís Írisar Ágústsdóttir: Krafan um óhlutdrægni dómara í ljósi forskilnings og femínískrar lögfræði
- Kári Hólmar Ragnarsson: Hæstiréttur og jafnræðisregla stjórnarskrárinnar 2004-2024
- Þorgerður Einarsdóttir: Jafnrétti eða jafnréttismælingar: Hvort kemur á undan hænan eða eggið?
Lagadeild HÍ og Bókaútgáfan Codex
12. mars 2026 – 15:30-16:30 – Lögberg 101
Að málþingi loknu er gestum boðið til móttöku á 4. hæð í Lögbergi
Brynhildur G. Flóvens
