Kennsludagar: Kennsluspjall á Hugvísindasviði

Veröld-Heimsvæði tungumála
Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.
Viðburður á vegum Hugvísindasviðs: “Uppáhaldsnámskeiðið mitt". Veröld, 15:15-16:15. Stofa: Heimasvæði tungumála. Staðviðburður. Öll velkomin.
Kennarar og nemendur á Hugvísindasviði ræða saman um það hvað einkennir gott námskeið og hvers vegna. Nemendur tilgreina eitt eða fleiri af sínum uppáhaldsnámskeiðum og segja frá því af hverju námskeiðið(in) er(u) í svo miklu uppáhaldi. Er það innihaldið eða starfshættirnir/skipulag? Hvað hefur nemendum fundist virka vel hvað varðar efni, kennsluaðferðir, námsmat eða annað. Markmiðið er auðvitað það að öll námskeið verði uppáhaldsnámskeiðið mitt.