Kennsludagar: LBHÍ

LBHÍ og á Teams
Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.
Viðburður á vegum Landbúnaðarháskóli Íslands: Viðburðirnir eru á Teams, klukkan 12.30-13 og eru öllum opnir. Athugið: Um er að ræða þrjá viðburði sem spanna þrjá daga.
LBHÍ stendur fyrir hádegisspjalli dagana 17.-19.mars þar fjallað verður um kennslu í skólanum. Markmiðið er spjalla saman um nýjungar í kennslumálum og rannsóknum tengdum þeim. Þriðjudaginn, 17.mars mun Jón Hjalti Eiríksson lektor við Ræktun og fæðu fjalla um könnun á kennsluaðferðum og fjarnámslausnum í grunnnámi hjá LbhÍ. Miðvikudaginn, 18.mars mun Emmanuel Pagneux, meðlimur Kennsluakademíunnar og dósent í Landupplýsingafræði og fjarkönnun fjalla um notkun tveggja þrepa verkefnaskila í grunn- og framhaldsnámskeiðum í landupplýsingakerfum. Fimmtudaginn, 19.mars mun Jóhanna Gísladóttir lektor við Ræktun og fæðu fjalla um að endurhugsa námsmat.