Skip to main content

Kennsudagar: Háskólinn á Akureyri

Kennsudagar: Háskólinn á Akureyri - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. mars 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólinn á Akureyri á TEAMS

Nánar 
Á íslensku

Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.

Fyrirlestur í boði Háskólans á Akureyri Kl. 12:00-13:00. Sjónhverfing skilvirkni: Hvernig þægindavæðing með gervigreind í menntakerfinu skapar vitræna skuld. Magnús Smári Smárason. Í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri og í streymi. Hér er hlekkur á streymið.

Markaðssetning gervigreindalausna lofar iðulega að losa okkur undan „forminu“ svo við getum einbeitt okkur að „efninu“. Þetta er þekkingarfræðileg blekking sem þjónar framleiðnikröfum en svíkur menntunina. Þegar við útvistum hugsun til mállíkana – hvort sem það er kennarinn við yfirferð eða nemandinn við textaskrif – fórnum við vitsmunalegum núningi, sem er helsti drifkraftur gagnrýnnar hugsunar. Við erum ekki að frelsa hugann, heldur byggja upp „vitræna skuld“ þar sem hæfni til sjálfstæðrar greiningar rýrnar stöðugt.

Ef skilvirkni kemur í stað nauðsynlegs núnings, hverja erum við þá að útskrifa? Framkvæmd menntunar á tímum gervigreindar má ekki verða auðveldari. Hún verður að vera krefjandi bæði fyrir nemendur og kennara, því aðeins þannig mótumst við sem manneskjur sem hugsa, ekki aðeins sem milliliðir á milli úttaks véla og raunveruleikans. Hlekkur á viðburðinn á síðu Háskólans á Akureyri. 

Um fyrirlesara Magnús Smári Smárason er verkefnastjóri á sviði gervigreindar við Háskólann á Akureyri. Erindið byggir á meistararitgerð hans, Beyond Fragmentation, þar sem hann setur fram gagnrýna, lífsgildamiðaða nálgun á stjórnarhætti gervigreindar og rýnir í hugtakið „vitræn skuld“ sem er einn af meginþráðum erindisins. Á heimasíðu sinni, www.smarason.is, miðlar hann nánar efni um rannsóknir sínar, hugbúnaðarsmíði og ábyrga stjórnarhætti gervigreindar.