Hvað er málið með Eddu? Bók fyrir innvígða, ekki almenning

Edda
Í fyrirlestrasal
Hvað er málið með Eddu? Bók fyrir innvígða, ekki almenning
Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, flytur fyrirlestur í Eddu kl. 13 laugardaginn 14. mars í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. Öll velkomin,
Nánar um efni fyrirlestrarins
Eddurnar og fornsögurnar eru áreiðanlegar heimildir um lifandi hefð á þrettándu og fjórtándu öld þar sem heimsmynd og hvers kyns hugmyndum og þekkingu var miðlað með frásagnarlist í lausu máli og bundnu án þess að ritun kæmi við sögu. Sögur voru sagðar um staði og farleiðir sem sögupersónur fóru um og tengdust hver annarri með ýmsum hætti – og inn í aðrar sögur sem áheyrendur hafa þekkt til. Umhverfið, svo á jörðu sem á himni, kallaði á sögur af einstaklingum af þessum heimi eða úr veröld hetja, goða og vætta með skýringum á því hvernig þeir tengdust í gegnum ættir, ástir og örlög. Þannig varð til stöðugt samspil þess sem lifandi fólk hafði fyrir augunum og þeirra persóna og atburða sem það gat sótt í þennan gagnvirka minnislykil sagnalistarinnar. Þær sögur og kvæði lögðu grunninn að hinum rituðu textum sem við köllum eddur og fornsögur og getum lesið á bókum.
Með því að lesa fornbókmenntirnar sem afsprengi minnishefðar munnlegra sagna og kvæða opnast leið til að skilja þær sem hluta af lifandi þekkingarkerfi með djúpar rætur langt aftur fyrir þá menntun og lærdómshefð sem hingað barst frá meginlandinu og kveikti þá hugmynd að hægt væri að skrifa eitthvað af þeirri þekkingu á bók. Til dæmis verður Eddan kennd við Snorra mjög áreiðanleg heimild í þessu ljósi um það hvernig ungum skáldum á þrettándu öld var kennt að tengja sögur af goðum við himininn þar sem þær voru sviðsettar fyrir allra augum í heita pottinum í Reykholti – óháð því hvað segja má um trúarbrögð á Norðurlöndum fyrir kristni með þá sömu Eddu sem heimild.
Hvað er málið með Eddu? Bók fyrir innvígða, ekki almenning Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, flytur fyrirlestur í Eddu kl. 13 laugardaginn 14. mars í tengslum við sýninguna Heimur í orðum. Öll velkomin,
