Skip to main content

Miðbiksmat í lífverkfræði - Mohammadmahdi Karimi

Miðbiksmat í lífverkfræði - Mohammadmahdi Karimi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. mars 2026 15:00 til 16:00
Hvar 

VR-II

Stofa 155

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heiti ritgerðar: Þróun klæðanlegs búnaðar til að miðla upplýsingum um stöðu og virkni stoðtækja neðri útlima (Development of a Wearable System for Conveying State and Functional Information from Lower-Limb Prostheses)

Nemandi: Mohammadmahdi Karimi

Doktorsnefnd:
Dr. Rúnar Unnþórsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Sigurður Brynjólfsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildHáskóla Íslands
Dr. Kristín Briem, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
Dr. Árni Kristjánsson, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands Dr. Karl Fannar Gunnarsson, lektor við Læknadeild Háskóla Íslands Atli Örn Sverrisson, Össur

Ágrip

Einstaklingar sem hafa misst neðri útlimi og nota gervihné og gerviökklaliði eiga oft erfitt með að stjórna stoðtækjunum á nákvæman og öruggan hátt og skortir jafnframt skynræna endurgjöf frá þeim. Þetta getur haft neikvæð áhrif á jafnvægi, öryggi og sjálfstraust í daglegum athöfnum. Markmið þessarar doktorsrannsóknar er að hanna, þróa og meta klæðanlegan búnað sem veitir notendum upplýsingar um stöðu og virkni stoðtækisins með titringsörvun. Rannsóknin byggir á notendamiðaðri og ítrunardrifinni hönnunaraðferðafræði. Í því felst að kanna hentugar leiðir til að miðla upplýsingum um stöðu stoðtækisins, þar á meðal staðsetningu og uppsetningu titrara sem veita snertiörvun, sem og val á titringstíðni og -styrk. Jafnframt verða hönnunarsjónarmið varðandi þægindi og notagildi metin sérstaklega. Í verkefninu verða þróaðar og endurbættar frumgerðir sem sæta kerfisbundnu mati, bæði með tæknilegum mælingum og notendaprófunum. Megindlegir árangursmælikvarðar og eigindleg endurgjöf notenda munu liggja til grundvallar frekari þróun og útfærslu búnaðarins. Með því að samþætta verkfræðilega hönnun, skynjunarfræði og endurhæfingarfræði miðar verkefnið að því að auðvelda stjórnun stoðtækja, draga úr hugrænu og líkamlegu álagi og efla sjálfstraust og sjálfstæði notenda. Að lokum er stefnt að því að leggja fram staðfestan ramma fyrir notkun slíks búnaðar sem stuðlar að öruggari göngu og bættum lífsgæðum notenda stoðtækja neðri útlima.

Mohammadmahdi Karimi

Miðbiksmat í lífverkfræði - Mohammadmahdi Karimi