Viðburðir sem auðlind

Hólar í Hjaltadal
Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi þriðjudaginn 17. mars kl. 13:00-16:00 þar sem fjallað verður um samfélagsleg áhrif viðburða.
Á málþinginu verður meðal annars rætt um öryggismál viðburða og mikilvægi þeirra fyrir samfélög og efnahagslíf. Auk þess verður fjallað um sjálfbærni í tenglum við viðburðahald og sértækan viðburð, Landsmót hestamanna, sem fer fram á Hólum næsta sumar.
Fyrirlesarar koma víða að og þar á meðal eru danskir sérfræðingar í sjálfbærni viðburða.
Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á beint streymi fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
Nánari upplýsingar og skráning
Dagskrá
Opnunarávarp
13:00 - 13:05 Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum
Samfélagsleg áhrif viðburða
13:05 - 13:20 Þórgnýr Dýrfjörð
13:20 - 13:35 Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
Öryggismál viðburða
13:35 - 13:50 Karl Steinar Valsson
Hlé - Veitingar
Sjálfbærni viðburða
14:05 - 14:30 Rasmus Hørested Jensen og Søren Stochholm Nielsen
14:30 - 14:45 Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sértækir viðburðir – hestatengdir viðburðir
14:45 - 14:55 Þórdís Anna Gylfadóttir
14:55 - 15:05 Kjartan Bollason
15:05 - 15:15 Ingibjörg Sigurðardóttir
Pallborðsumræða 15:30-16:00
Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi þriðjudaginn 17. mars kl. 13:00-16:00 þar sem fjallað verður um samfélagsleg áhrif viðburða.
