Skip to main content

Pólland í dag: Útflutningsvaran Varsjá

Pólland í dag: Útflutningsvaran Varsjá - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. mars 2026 16:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumálanna

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Paulina Potasińska – Fyrirlestur og vinnustofa
Pólland í dag: Útflutningsvaran Varsjá
18. mars kl. 16:00 – 18:00 á Heimasvæði Tungumála, Veröld – húsi Vigdísar, Brynjólfsgötu 1, 107 Rvk.

Varsjá er borg sem var ætlað að hverfa. Henni var nær algjörlega eytt í síðari heimsstyrjöldinni, endurreist úr rústum, mótuð af sósíalisma og svo umbreytt á róttækan hátt eftir 1989. Í dag er hún ein kraftmesta – og jafnframt mótsagnakenndasta – höfuðborg Evrópu. Á viðburðinum „Poland Today: Exporting Warsaw“, sem Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands stendur fyrir ásamt Pólska sendiráðinu á Íslandi, munum við skoða hvernig Varsjá segir sögu sína útávið.

Fyrri hluti þessa viðburðar er fyrirlestur á ensku sem ber heitið „Warsaw’s Cultural Export Goods“ og er opinn öllum sem hafa áhuga á höfuðborg Póllands. Þar verður sýnt hvernig Varsjá „flytur út“ sjálfsmynd sína í gegnum goðsagnir, tákn, þekkta persónuleika, borgarrými, minnisvarða, matargerð, tónlist og daglegar hefðir. Í stað hefðbundins sögulegs yfirlits verður boðið upp á lifandi og áhugaverða kynningu á Varsjá sem menningarlegu fyrirbæri, þar sem þátttakendur eru hvattir til að fara út fyrir staðalmyndir og upplifa borgina sem líflega stórborg sem hefur svo margt fram að færa.

Seinni hlutinn er vinnustofa „Warszawa dla początkujących“ („Varsjá fyrir byrjendur“), ætluð þeim sem hafa litla eða enga þekkingu á pólsku (A1/A1+). Þar fá þau tækifæri til að dýpka skilning sinn á borginni, auka orðaforða og efla menningarlega færni sína.

Pólski sendiherrann á Íslandi Hr. Aleksander Kropiwnicki flytur opnunarávarp og boðið verður upp á veitingar sem tengjast efni viðburðarins.

Paulina Potasińska er bókmenntafræðingur og sérfræðingur í máltileinkunarfræðum. Hún er lektor hjá Polonicum miðstöðinni  við Háskólann í Varsjá þar sem hún kennir pólsku sem annað mál. Rannsóknir hennar beinast að pólskum samtímabókmenntum með sérstaka áherslu á bókmenntalega kortlagningu Varsjár og hefur hún haldið fyrirlestra um það efni víða um heim.

Paulina Potasińska

Pólland í dag: Útflutningsvaran Varsjá