Skip to main content
5. maí 2025

Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla bjóða upp á kostulega klassík

Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla bjóða upp á kostulega klassík - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla í Kaliforníu tekur höndum saman með Háskólakórnum og býður upp á vortónleika í Langholtskirkju þann 6. maí. Ókeypis er á tónleikana en sækja þarf miða á tix.is.

Hljómsveitin, sem er skipuð 60 háskólanemum í hljóðfæraleik, var stofnuð árið 2006 og hefur getið sér gott orð fyrir flutning sinn á ýmsum lykilverkum tónbókmenntanna með sérstakri áherslu á bandarísk hljómsveitarverk. Stjórnandi Westmont-sinfóníunnar er Dr. Ruth Lin, sem er jafnframt forseti tónlistardeildar Westmont-háskóla. Sveitin hefur heimsótt Ítalíu, Kína, Ungverjaland, Austurríki og Bretland á undanförnum árum auk þess að spila um gervöll Bandaríkin.

Háskólakórinn er rúmlega hálfrar aldar gamall og er að jafnaði skipaður 60 til 70 nemendum við Háskóla Íslands, jafnt íslenskum sem erlendum. Stjórnandi kórsins er Gunnsteinn Ólafsson. Kórinn kemur fram á helstu viðburðum skólans, eins og brautskráningum, en stendur einnig fyrir eigin tónleikum á hverri önn. Kórinn hefur tekið þátt í kóramótum erlendis og unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum. Þá hefur Háskólakórinn gefið út fjölmargar hljómplötur og geisladiska með íslenskri tónlist.

Í haust hélt Háskólakórinn glæsilega tónlistarveislu ásamt Sinfóníuhljómsveit unga fólksins þar sem verkið Gloría eftir franska tónskáldið Francis Poulenc var flutt á tvennum tónleikum í Langholtskirkju. 

Nú er komið að vortónleikum kórsins og þar stígur kórinn á stokk með Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla sem fyrr segir. Bandarísk verk eru fyrirferðamikil á efnisskránni og það er óhætt að segja að hún sé bráðskemmtileg og í léttari kantinum. Meðal verka eru tónsmíðar eftir Aaron Copland, söngleikjahöfundinn Morton Gould, Emmy-verðlaunahafann Steve Heitzeg auk stefja úr Indiana Jones og Star Wars. Hér er því um að ræða kostulega skemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

Alls leikur Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla á þrennum tónleikum hér á landi en auk tónleikanna með Háskólakórnum í Langholtskirkju leikur sveitin í Reykholtskirkju 7. maí og í Hofi á Akureyri þann 11. maí. Ókeypis er á alla tónleikana og hægt er að nálgast miða hér.

Háskólakórinn

Sinfóníuhljómsveit Westmont-háskóla í Kaliforníu tekur höndum saman með Háskólakórnum og býður upp á vortónleika í Langholtskirkju þann 6. maí.